03 feb.

Haha og pabbi pabbi..

Veit ekki um ykkur en mér finnst þessi gaur hrikalega fyndinn. :)

Best að stríða þessum strák sem minnst.

Categories: Almennt blogg
Tags:
03 feb.

Apa hagfræði ?

Það er nú margt sem ég skil ekki, hugsun ríkisstjórnarinnar í skattlagningu og álögum er einn þeirra hluta. Þetta las ég í morgunn á Vísi. “Þetta er mun meiri samdráttur en Vegagerðin gerði ráð fyrir. Hann var mestur á Suðurlandi, eða 21 prósent, en minnstur á Norðurlandi, fimm prósent. Akstur um Hvalfjarðargöng dróst saman um 17 prósent , sem jafngildir fækkum um 640 bíla á sólarhring allan mánuðinn. Þetta er mesti samdráttur í göngunum til þessa”
Steingrími og co finnst mjög sniðugt að hækka álögur á bensín villt og galið því þá komi “meira” í kassann. Þessir snillingar sem stjórna landinu átta sig ekki á því að það kemur minna í kassann við þetta.

Ég veit ekki hvað skal segja, sumir vilja kosningar, til hvers ? Jú skil rökin að kjósa sjálfstæðismenn því þeir segjast munu lækka skatta og álögur, haldið þið í alvörunni að þeir standi við eitthvað af sínum loforðum ? Eina sem maður getur bókað með sjálfstæðisflokkinn er að þeir munu taka okkur ekkert minna í rassinn en Jóhanna og bóndi hennar Steingrímur en þeir gera það með meiri stæl, láta okkur halda að þeir séu vinir okkar og það sé bullandi uppsveifla en svo hrynur allt saman. Að sjálfsögðu kannast enginn við neitt þegar það gerist og enginn er ábyrgur, enginn segir af sér.

Hvað skal þá kjósa ? Kúk eða skít ?

Categories: Almennt blogg
Tags:
02 feb.

Ouch…

Veit ekki hvað skal segja, eflaust plat en nokkuð vel gert plat ef það er málið.

Eitt í viðbót, haha… :)

Categories: Almennt blogg
Tags:
02 feb.

Hvað er að ?

Hvað er málið með fólk og fótbolta, ég veit að þetta er vinsælasta íþrótt í heimi en
afhverju lætur fólk svona ? Suður Ameríka, suður evrópa og miðaustur löndin, já giskuðuð á rétt sem er einnig enn sunnar en suður evrópa er með biluðustu fótbolta “aðdáendur” í heimi. Ætli þeir setji eitthvað í vatnið á þessum stöðum eða ætli vanti einn litning í karlmennina á þessum stöðum ?

Afhverju mætir fólk á fótbolta leiki með hnífa ? Hmm ég er að fara á fótbolta leik, best að taka með sér hnífinn, aldrei að vita nema ég þurfi að hlaupa inn á völlinn og stinga tvo til þrjá. Get svo sem “skilið” ef einn geðsjúklingur mætir á fótbolta leik með hníf en í þessu tilfelli þá var það víst heil skrúðganga. Hvað sem því líður þá er eitthvað að fólki og lögreglan brást algjörlega í þessu tilfelli, finnst að það ættu að vera virkilega grófar refsingar fyrir liðin í svona málum.
Næstu 10 leikir t.d verða án áhorfenda, fyrir bæði liðin.

Categories: Almennt blogg
Tags:
01 feb.

Klám-net-kynslóðin

Ungt fólk í dag, segja hvort öðru upp í gegnum sms eða Facebook.
Heyrði reyndar dæmi um daginn þar sem hátt í þrítugur maður sagði
kærustunni upp í gegnum sms eftir tveggja ára samband, er fólk ekki í lagi ?
Þessi kynslóð hefur engan pung í að ræða “face-to-face” við annað fólk.
Æi ég sendi bara sms…. hnuss (Já eins og í Andrés andar blaði) :)

Categories: Almennt blogg
Tags:
01 feb.

Smá fræðsla fyrir heilabúið

Categories: Almennt blogg
Tags:
31 jan.

Hvatning

Það geta allir gert eitthvað.

Categories: Almennt blogg
Tags:
31 jan.

ACTA

Það var mikið að einhver hér heima segir frá þessu. ACTA á mbl.is

Categories: Almennt blogg
Tags:
31 jan.

Vit-leysa

Ótrúlegt finnst mér hvað fólk getur kvartað yfir. Tökum sem dæmi, REKSTUR Landsbankans í hættu vegna lágra launa bankastjórans.

O.k ég get skilið að fólk sem er með mikla menntun vilji há laun en afhverju er reksturinn í hættu vegna þess að stjórinn er óánægður, í fyrsta lagi þá er methagnaður á bönkunum. Ekki að það hagnist okkur, fólkinu í landinu neitt þó við séum að borga þennan methagnað upp í topp. Slefandi, gráðugir kröfuhafar og slitastjórnir sitja sveitt á kjötkötlunum hlægjandi að okkur moðhausunum sem mætum í vinnuna á hverjum degi, borgum alltof mikið í skatt, með lækkaðar barnabætur og lengi mætti telja. Rekstur heimilanna er í hættu, hverjum er ekki sama þótt þú skerð af höfuðið á spilltum banka, það vex annað höfuð eflaust verra í staðinn sem vill meira en hann fær í dag.

Mig furðar hvernig fólk getur kvartað undan lágum launum þegar það þarf ekki að sýna neina ábyrgð í starfi né taka ábyrð á einu né neinu sem fer úrskeiðis ?
Mig grunar að ég beri meiri ábyrgð í mínu starfi en yfirmenn fjármálastofnana á þessu landi.

Categories: Almennt blogg
Tags:
30 jan.

ACTA

Fólk þarf að byrja að ræða um ACTA, ACTA stendur fyrir Anti-Counterfeiting Trade Agreement. Samþykkt af 21 einu ríki í ESB núna 26 janúar, einu ríkin sem skrifuðu ekki undir voru, Cyprus, Germany, Estonia, Slovakia, og Netherlands.

Þú spyrð kannski hvaða máli skiptir þetta mig ?
Vefir eins og youtube, wikipedia, facebook og mörgum fleiri verður lokað.
Internetþjónustuaðilinn þinn skoðar ÖLL samskipti þín á internetinu.
Ef þú færð sent vídeó, lag eða annað í tölvupósti eða áframsendir þá
getur þú átt von á sekt og ef brotin eru stór fangelsi.
Þetta hljómar allt mjög ótrúlega og eflaust eins og ég sé að ýkja þetta en svona er staðan.

Ef þú brýtur af þér þrisvar þá getur þjónustuaðilinn þinn lokað internet aðgangi
þínum í eitt ár og þú verður settur/sett á svartan lista, þannig ef þú brýtur
af þér og ert hjá Símanum þá getur þú ekki farið til Vodafone og opnað annan aðgang. Þetta geta þeir, samkvæmt samþykktinni gert án sannana, seinast þegar ég vissi, gæti verið að þessu hafi verið breytt.

Ég legg til að allir horfi á þetta myndband sem útskýrir þetta.
Spread the word eins og sumir segja….

Frétt um andstöðuna í Póllandi útaf þessu sem kemur ekkert í fréttum.

Categories: Almennt blogg
Tags: